Hátíðin

The Northern Wave International Film Festival verður haldin helgina 2. – 4. mars 2012 í Grundarfirði á Snæfellsnesi.
Nafnið á hátíðinni og hugmyndafræði er byggð á frönsku nýbylgjunni eða Nouvelle Vague en hátíðin leggur áherslu á listræn gildi kvikmyndarinnar öðru fremur.
Mikilvægt markmið hátíðarinnar er að koma á fót tengslaneti meðal reyndra kvikmyndagerðarmanna og þeirra sem eru að feta sín fyrstu skref í greininni, erlendum sem innlendum. Auk þess býður hátíðin listamönnum úr öðrum geirum t.a.m. tónlistargeiranum að taka þátt með tónleikahaldi. Hátíðin er einnig mikilvægur hluti í að auka framboð menningarviðburða á landsbyggðinni.

Hátíðin leggur áherslu á að sýna fjölbreytileika stuttmyndaformsins með því að sýna öll form stuttmyndarinnar frá heimildarmyndum til teiknimynda og allt þar á milli. Northern Wave hátíðin er eina hátíðin á landinu sem verðlaunað er besta íslenska tónlistarmyndbandið. Tónlistarfólk sem á myndband á hátíðinni er svo hvatt til að fylgja því eftir með tónleikahaldi.

Northern Wave dagsrkáin innheldur því ekki aðeins bíósýningar, sem fara fram í Samkomuhúsi Grundarfjarðar, heldur líka tónleika bæði föstudags og laugardagskvöldið auk hinnar vinsælu fiskisúpukeppni Grundfirðinga. Þar að auki býður hátíðin upp á fyrirlestur með heiðursgesti hátíðarinnar.

Comments are closed.