Grundarfjörður er lítið sjávarþorp á norðanverðu Snæfellsnesi. Það búa rúmlega 900 manns. Bærinn er í miðjum firði, umkringdur fjöllum og ber þar af hið sérstæða og fallega Kirkjufell.
Í Grundarfirði og í nágrenninu eru tvö veitingahús, hótel, farfuglaheimili, þrjú gistiheimili, þrjú tjaldsvæði, sumarhús, sundlaug og síðast en ekki síst Sögumiðstöðin sem er í senn safn, ljósmyndasetur, kaffihús og upplýsingamiðstöð.
www.grundarfjordur.is

























