Aðstandendur Northern Wave vilja þakka öllum sem sendu stuttmyndir á hátíðina í ár. Yfir 160 stuttmyndir bárust hátíðinni en 49 myndir voru valdar til sýningar.
39 af þessum myndum keppa í verðlaunaflokknum “Alþjóðlegar stuttmyndir” og 10 í verðlaunaflokknum “Íslenskar stuttmyndir”.
Í fyrsta skipti í sögu Northern Wave verður boðið upp á dagskrá heimildarmynda og sérstaka dagskrá ætlaða börnum.
Mikil gróska var í íslenskri tónlistarmyndbandagerð á síðasta ári en Gogoyoko hefur valið úr 20 myndbönd sem keppa til verðlauna á hátíðinni í ár.
Hér má sjá lista yfir myndböndin.
Hér er listi yfir allar valdar myndir á hátíðinni í ár
























