Grundarfjörður er á norðanverður Snæfellsnesi og tekur rúma tvo klukkutíma að keyra þangað frá Reykjavík
Frá Reykjavík á bíl
Ekið er út úr Reykjavík um Vesturlandsveg í átt að Hvalfjarðargöngum og þaðan stefnt í átt að Borgarnesi. Keyrt er í gegnum Borgarnes í átt að Stykkishólmi.
Þegar komið er að Vegamótum á Snæfellsnesi er keyrt yfir Vatnaheiði til Grundarfjarðar. Leiðin er vel merkt.
Rútuferðir
Strætó hefur tekið yfir ferðir til Grundarfjarðar. Hér eru upplýsingar um tímatöfluna og stætisvagna til Grundarfjarðar.
Ferðin kosta 3500 aðra leið og það eru tvær ferðir á föstudeginum í kringum 7.30 og 17.00 og fer aftur í bæinn á sunnudeginum rétt eftir að hátíðinni líkur kl. 16.47.
Hér eru nokkur kort
























